Nýjast á Local Suðurnes

Styrktu ýmis félög um fjórar milljónir króna eftir vel heppnaða skötuveislu – Myndir!

Félag krabba­meins­sjúkra barna, eldri borg­ar­ar, Íþrótta­fé­lagið Nes, Skát­arn­ir í Kefla­vík og Vel­ferðarsjóður Suður­nesja voru á meðal þeirra félaga sem hlutu styrk þegar árleg Skötuveisla var haldin í Garði í gær. Alls námu styrkirnir á fjórðu milljón króna.

Þetta var í ell­efta sinn sem veisl­an er hald­in, en að henni standa alþingismaðurinn Ásmundur Friðriksson og nokkur vinahjón.

Ýmsir kunnir listamenn héldu uppi stemn­ing­unni í Garðinum í gær­kvöldi, þeirra á meðal Gunnar Þórðarson, en auk þekktra listamanna tóku meðal annars bæjarstjórinn í Garði, Magnús Stefánsson og lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Ólafur Helgi Kjart­ans­son lagið.

Ásmundur birti fjölda mynda frá veislunni á Facebook-síðu sinni, en þær má finna hér fyrir neðan.