sudurnes.net
Styrktartónleikar í Keflavíkurkirkju 18. desember - Local Sudurnes
Vinir og fjölskylda Elínar Ólafsdóttur flugfreyju frá Keflavík munu blása til jólatónleika til styrktar Elínu sem fór í hjartaskiptiaðgerð til Gautaborgar í nóvemberlok. Tónleikarnir verða haldnir í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 18. desember klukkan 17 og munu standa til 18:30. Fram koma: Alexander Grybos Bjarki Hólmgeir Hall Flugfreyjukórinn Sönghópur Suðurnesja Víkingarnir Vox Felix Allur ágóði af tónleikunum mun renna til fjölskyldunnar. Forsala miða er í Skóbúð Keflavíkur, Hafnargötu 29, við hliðina á K-Sport en einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn. Miðaverð er 2500 kr. Meira frá SuðurnesjumFjáröflunartónleikar Hollvina Unu í Útskálakirkju í kvöldGunnar Helgason leikstýrir barnasýningu Leikfélags KeflavíkurFjölskylduskemmtun Björgunarsveitarinnar Suðurnes í kvöldOfurvinningar á Bingóballi í ljónagryfjunniStórglæsilegir jólatónleikar í HljómahöllOpnun þriggja sýninga í Duus SafnahúsumBjörgunarsveitin Þorbjörn býður í tertuveislu!Í Holtunum heima flutt innMiðar á OMAM seljast á allt að 100 þúsund krónurGefa 2.500 skammta af bóluefni í vikunni