Nýjast á Local Suðurnes

Sögusýning í tilefni 50 ára afmælis Mána

Í tilefni af hálfrar aldar afmæli hestamannafélagsins Mána verður opnuð sögusýning í Bíósal Duus safnahúsa laugardaginn 31. október kl. 14:00. Sýningin er samstarfsverkefni Mána og Byggðasafns Reykjanesbæjar og verður hún opin út árið.

Á sýningunni verður viðburðarríkri sögu félagsins gerð skil í máli og myndum frá stofnun þess árið 1965. Saga þeirra fjallar m.a. um framkvæmdir, landgræðslu, æskulýðsstarf, ferðalög, þátttöku í mótum og umfram allt ræktun og umhyggju fyrir þeirri stórkostlegu skepnu sem íslenski hesturinn er.

Félagið hefur staðið fyrir fjölbreyttu félagsstarfi, t.d. haldið hestaþing, fræðslu- og skemmtifundi, hestamót, kappreiðar, firmakeppni og staðið fyrir námskeiðum af margvíslegu tagi.