Söfnuðu 450.000 fyrir minningar- og styrktarsjóð Ölla
Um 20 hlauparar hlaupu fyrir Minningar- og styrktarsjóð Ölla sem hefur það að markmiði að styrkja börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.
Alls safnaði hópurinn 445.000 krónum sem munu renna í þetta þarfa verkefni.
Forsvarsmenn hópsins eru ánægð með hvernig til tókst og þakka fyrir veittan stuðning á Facebook-síðu Minningar- og styrktarsjóðs Ölla.
“Þessi dagur fór fram úr okkar björtustu vonum og við getum strax byrjað að leyfa okkur að hlakka til hlaupsins að ári.” Segir meðal annars á Facebooksíðunni