sudurnes.net
Rauðhetta og Hans og Gréta heimsækja Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Rauðhetta er stórskemmtilegur fjölskyldusöngleikur með Rauðhettu og úlfinum, Hans og Grétu og grísunum þremur, klassísk ævintýrablanda í boði Leikhópsins Lottu. Verkið verður sýnt í Andrews Theater þann 21. febrúar klukkan 17:30 Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Hópurinn, sem hefur sérhæft sig í sýningum utandyra, er nú annan veturinn í röð að ferðast með innandyra sýningu um landið og ætlar að heimsækja okkur í Reykjanesbæ í ár. Hægt er að tryggja sér miða fyrirfram með því að smella á þennan link opnast miðasalan á tix.is Rauðhettu setti hópurinn fyrst upp árið 2009 en nú tíu árum síðar verður rykið dustað af þessu skemmtilega verki og fært nýjum og gömlum áhorfendum í glænýjum búningi. Ævintýrið um Rauðhettu og úlfinn þekkja allir en í meðförum Lottu hefur tveimur þekktum ævintýrum til viðbótar verið bætt í leikinn. Það eru sögurnar um grísina þrjá og systkinin Hans og Grétu. Þá eru í verkinu meira en 10 stórskemmtileg lög sem binda söguna saman. Úr verður gómsætur ævintýrakokteill sem enginn má láta framhjá sér fara. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Handritshöfundur: Snæbjörn Ragnarsson Höfundar laga og texta: Anna Bergljót Thorarensen, Baldur Ragnarsson, Gunnar [...]