Nýjast á Local Suðurnes

Pólsk menningarhátíð á laugardag – Hægt að kíkja í ,,heimsókn“ á pólskt heimili

Reykjanesbær hefur staðið fyrir pólskri menningarhátíð undanfarin tvö ár - Ljósmynd: Reykjanesbær / Tomasz Lenart

Reykjanesbær blæs í annað sinn til pólskrar menningarhátíðar í samstarfi við hóp íbúa af pólskum uppruna. Hátíðin verður haldin á Nesvöllum laugardaginn 9. nóvember 2019 kl. 13–16 og gleður augu, eyru og maga.

Áhersla ársins eru persónulegar sögur íbúa Reykjanesbæjar af pólskum uppruna og verður sett upp listsýning tengt áherslunni. Pólskur „street food“ markaður verður á hátíðarsvæðinu, tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og pólski þjóðadansinn POLONEZ verður stiginn. Fluttar verða hátíðarræður og ýmis afþreying verður á boðstólnum. Hátíðinni verður svo lokað með rokkuðu ívafi af hljómsveitinni DEMO.

  • Að undirbúningi og skipulagningu hátíðarinnar kemur hópur fólks, bæði starfsmanna og sjálfboðaliða. Ein þeirra er Vena Naskrecka sem er listfræðimenntuð og hefur unnið fallega listsýningu úr 17 persónulegum sögum. Þar að auki verða sýnd myndbönd úr lífi íbúa af pólskum uppruna sem hjónin Adam og Katarzyna Calicki hafa tekið saman.
  • Fjöldi sjálfboðaliða hefur boðist til þess að gera mat fyrir pólskan street food markað sem settur verður upp. Katarzyna Pozezinska er aðalkonan á bak við matargerðina, en hún gerði pottréttinn Bigos í fyrra sem rann ljúft ofan í maga gesta hátíðarinnar. Hún mun endurtaka eldamennskuna í ár en fleiri koma að matargerðinni svo í boði verða ýmsir réttir.
  • Í Póllandi er dansað Polonez þegar slegið er upp veislu. Aneta, zumbakennari með meiru ætlar kenna gestum hátíðarinnar dansinn og hjálpa til svo hægt verði að stíga Polonez dansinn.
  • Einu fundarherbergi á Nesvöllum verður breytt í pólska setustofu svo þar verður hægt að fara í ,,heimsókn“ á pólskt heimili og fá sér te, kaffi og pólskar kexkökur.
  • Krakka Akademían er skóli sem sinnir pólskri móðurmálskennslu í Reykjanesbæ. Daria Luczków er skólastjóri skólans og hefur jafnframt komið að undirbúningi hátíðarinnar með ríkulegum hætti. Nemendur skólans munu flytja pólska þjóðsönginn og hafa æft leikrit fyrir viðburðinn. Krakka Akademían sér jafnframt um andlitsmálningu og afþreyingu fyrir börn.
  • Tónlistarskóli Reykjanesbæjar, Danskompaní og Taekwondodeild Keflavíkur verða með ýmis atriði til þess að skemmta gestum hátíðarinnar.
  • Hátíðinni verður svo lokað með rokkuðu ívafi af hljómsveitinni DEMO. Sveitina skipa drengir sem allir hafa verið í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og tveir hljómsveitarmeðlimanna eru pólskir bræður sem hafa mikla tónlistarhæfileika og metnað.