sudurnes.net
Opnun þriggja sýninga í Duus Safnahúsum - Local Sudurnes
Á föstudag kl. 18 verða þrjár nýjar sýningar opnaðar í Duus Safnahúsum, tvær á vegum Listasafns Reykjanesbæjar og ein á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar. Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýningu á verkum Guðjóns Ketilssonar. Sýningin ber heitið TEIKN og sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Í sýningarskrá má m.a. sjá texta eftir Sjón. Listamaðurinn og sýningarstjórinn verða með leiðsögn sunnudaginn 10. mars kl.15. Við sama tilefni verður opnuð í Bíósal sýning á ljósmyndum úr safneign Listasafnsins. Sýningin ber heitið LJÓS OG TÍMI og sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir. Einnig opnar Byggðasafn Reykjanesbæjar ljósmyndasýninguna FÓLK Í KAUPSTAÐ. Á sýningunni gefur að líta örlítið sýnishorn af ljósmyndum í eigu Byggðasafnsins. Þema sýningarinnar er fólk og fjölbreytt mannlíf í kaupstaðnum Keflavík og nágrannbænum Njarðvík á árunum 1944 til 1994. Sýningarstjóri og ljósmyndari verða með leiðsögn sunnudaginn 10. mars kl.14. Safnið er opið alla daga frá 12-17 og sýningarnar standa til 22. apríl. Meira frá SuðurnesjumDagur um málefni fjölskyldunnar í Fjölskyldusetrinu 12. marsAðventugarðurinn opnar á nýSýningin Við sjónarrönd opnar í dag – Áhrif loftslagsbreytinga í listrænni nálgunAllt sem var í búrskápnum til sýnis á LjósanóttBjóða upp á risa draugahús á HrekkjavökuSöfnunarstaðir víðsvegar um bæinn á Stóra plokkdeginumDagforeldrar fengu viðurkenningu á Degi um málefni fjölskyldunnarYfir 1300 léku listir sínar á skautumLeita að [...]