Ókeypis jazztónleikar í Suðurnesjabæ - Local Sudurnes
Jazzfjelag Suðurnesjabæjar efnir til tónleika í Bókasafni Sandgerðis í kvöld. Djasstríó skipað þeim Kjartani Valdemarssyni píanóleikara, Gunnari Hrafnssyni bassaleikara og Jóhanni Hjörleifssyni trommuleikara kemur fram á tónleikum Jazzfjelags Suðurnesjabæjar fimmtudagskvöldið 10. október, klukkan 20, í Bókasafni Sandgerðis. Þeir félagar hafa lengi verið áberandi í tónlistarlífi landsins og saman hafa þeir leikið um árabil með Stórsveit Reykjavíkur. Á þessum tónleikum leita þeir í form hins hefbundna píanó tríós og samanstendur efnisskrá tónleikanna af þekktum og óþekktum lögum úr djassbókinni, nýjum sem gömlum. Aðgangur er ókeypis, heitt á könnunni og allir velkomnir! Meira frá SuðurnesjumLjúfir tónar og góðgæti á Erlingskvöldi Bókasafns ReykjanesbæjarOf Monsters And Men léku lagið Empire hjá Ellen – Myndband!Fríða Dís með útgáfutónleika í HljómahöllMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkJólaljós tendruð um öll Suðurnes um helginaTónlistarskóli Reykjanesbæjar stofnar barnakórGamaldags jólaboð í Duus safnahúsumKanna viðhorf og upplifanir á LjósanæturhátíðStefnir í bráðskemmtilega vortónleika Karlakórs Keflavíkur og Eyþórs IngaCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röð