sudurnes.net
Njarðvíkingar skelltu í afmælisveislu fyrir einn dyggasta stuðningsmanninn - Local Sudurnes
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur sýnt það undanfarin misseri að þar á bæ hugsa menn vel leikmenn sína og stuðningsmenn, og á því varð engin breyting þegar einn dyggasti stuðningsmaður liðsins í gegnum árin, Lára Ingimundadóttir fagnaði 45 ára afmæli sínu. Láru var afhentur flottur blómvöndur fyrir leik liðsins gegn Stjörnunni á dögunum, í tilefni dagsins, en auk þess að vera einn öflugasti stuðningsmaður liðsins, hefur Lára unnið við nánast hvern einasta heimaleik liðsins undanfarin ár. Í leikhléi var svo blásið til heljarinnar afmælisveislu Láru til heiðurs, þar sem boðið var uppá flott bakkelsi og að sjálfsögðu köku skreytta í Njarðvíkurlitunum. Meira frá SuðurnesjumGóð þátttaka í 17. júní hlaupi kd. UMFN – Myndir!Húsfyllir á 15 ára afmælishátíð heilsuleikskólaHeilsuleikskólinn Háaleiti á Ásbrú fékk GrænfánannLeikskólabörn setja upp sýningu – Fólkið í bænum “við erum allskonar”Studio 16 Lounge opnar eftir breytingar – Lifandi tónlist allar helgarSíldarkvöld Knattspyrnudeildar Njarðvíkur á föstudagskvöldÖflug dagskrá á Ránni á 34 ára afmæliMikið fjör þegar ljós voru tendruð á jólatrénu í GrindavíkVel fagnað í skrúðgarðinum þegar Arnór Ingvi skoraði – Myndir og myndband!Jón og Gunnar með tónleika í tilefni 50 ára afmælis Stapa