Nýjast á Local Suðurnes

Nettó gefur súpu á Menningarnótt – Löguð úr hráefni sem komið er á síðasta söludag

Til að sporna gegn matvælasóun býður Suðurnesjafyrirtækið Nettó upp á diskósúpu á Menningarnótt undir merkjum átaksins Minni sóun. Tilgangurinn er að ylja gestum með bragðmikilli súpu sem elduð er úr hráefni sem komið er á síðasta söludag eða er útlitsgallað og færi undir öðrum kringumstæðum í ruslið þó það sé enn í fullu fjöri.

Diskósúpan inniheldur því allskonar ljúffengt grænmeti og verður bæði vegan og glútenfrí en stútfull af stemmingu.

Súpupartýið er hluti af Garðpartýi Bylgjunnar og verður staðsett í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt milli kl. 17 og 19. Þjóðþekktir Íslendingar með dálæti á súpum og andstyggð á sóun matvæla munu skenkja súpuna með glæsibrag.