sudurnes.net
Nettómótið á næsta leiti: Veitingamenn og eigendur verslana hvattir til að birgja sig upp - Local Sudurnes
Hið árlega Nettómót í körfuknattleik fer fram í Reykjanesbæ helgina 2. – 4. mars næskomandi og hvetur barna- og unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur þá aðila sem hafa með afþreyingu og veitingarekstur að gera að gera sig klára í að taka á móti þúsundum gesta. Búast má við þúsundum gesta til Reykjanesbæjar þessa helgi og er það markmið allra sem koma að mótinu að taka vel á móti öllum þeim sem heimsækja okkur, segir í tilkynningu. Við hvetjum forsvarsmenn veitingastaða, verslana og aðra sem bjóða upp á hverskyns afþreyingu að vera vel undirbúna undir helgina og tilbúna til að taka við miklum fjölda. Markmiðið er að gestir okkar kveðji Reykjanesbæ með jákvæðum hug að loknu móti, segir einnig í tilkynningunni. Meira frá SuðurnesjumGötulokanir vegna bæjarhátíðarListahátíð barna haldin í fjórtánda sinnAðventugarðurinn opnar á nýKvennakór tók lagið úti á svölum í rjómablíðu – Myndband!Margir af þekktustu listamönnum þjóðarinnar taka þátt í streymisdagskrá HljómahallarFjölmargir mættu í flott prófkjörsteiti Ísaks Ernis – Myndir!Barnahátíð og Skemmtigarðurinn í samstarfHalda tónleika til styrktar Minningarsjóðs ÖllaSögufélag Suðurnesja heldur fræðslufund um sýninguna VerbúðarlífPólsk menningarhátíð í þriðja sinn