Nýjast á Local Suðurnes

Mugison heldur tónleika í Stapa – Gestir fá eintak af nýju plötunni

Tónlistarmaðurinn góðkunni, Mugison, kemur fram á tónleikum í Stapa í Hljómahöll þann 3. desember næstkomandi. Hann verður með fullt band með sér og lofar góðu sprelli, eins og honum einum er lagið, segir í tilkynningu.

Mugison hélt tónleika í Bergi í Hljómahöll í nóvember á síðasta ári en miðarnir seldust upp á örfáum klukkutímum.

Mugison gaf út plötuna Haglél sem setti sölumet árið 2011 og seldist í tugþúsundatali. Platan var sú fyrsta hjá honum sem var alfarið sungin á íslensku. Nýja platan hans er nýkomin út og fá allir tónleikagestir eintak af plötunni!

Afrek hans eru óteljandi en á meðal þess sem hann hefur gert í gegnum tíðina er að standa fyrir tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði sem haldin er hverja páska, hefur spilað á einum stærstu tónlistarhátíðum heims s.s. Hróarskeldu, verið valinn Vestfirðingur ársins oftar en einu sinni og þannig mætti lengi telja.