Nýjast á Local Suðurnes

Mikill áhugi á ATP Iceland 2016 – Dagskráin að verða fullmótuð

John Carpeter kemur fram á ATP 2016

Dagskrá ATP tónlistarhátíðarinnar sem haldin verður á Ásbrú dagana 1-3 júlí næstkomandi er að verða hin glæsilegasta. Dagskráin skartar nú þegar sjálfum meistara hryllingsmyndanna, hinum goðsagnakennda John Carpenter, sem í fyrsta sinn á ferlinum flytur tónlist sína opinberlega.

Aðstandendur hátíðarinnar hafa nú tilkynnt um enn fleiri tónlistarmenn sem munu koma fram, þeirra á meðal eru Sleep, Thee Oh Sees, Ty Segall and The Muggers, Angel Olsen, Les Savy Fav og Tortoise. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu hátíðarinnar.

Rithöfundurinn, ljóðskáldið og tónlistarkonan Anika (Invada, Stones Throw) mun koma fram með líbísku söngkonunni og lagahöfundinum Yasmine Hamdan, Blanck Mass mætir en það er sólóverkefni sem Benjamin John Power úr Fuck Buttons ber ábyrgð á. Argentínska dúóið Mueran Humanos sem býr nú í Berlín kemur einnig en þau gefa út hjá ATP Recordings.

Að lokum hafa Örvar Smárason & Gunnar Tynes (múm) verið bókaðir á hátíðina en þeir munu spila tónlist undir sýningu myndarinnar ‘Menschen am Sonntag’ (People on Sunday) – en þetta er þýsk þögul kvikmynd síðan 1930 sem er byggð á handriti Billy Wilder. Einnig er vert að geta þess að hinn virti uppistandari Stewart Lee mun bregða undir sig betri fætinum en hann kemur sjaldan fram erlendis.

Mikill áhugi virðist vera á hátíðinni, sem fram fer eins og áður sagði í júlí næstkomandi, en samkvæmt heimasíðu hátíðarinnar eru þeir miðar sem fóru í forsölu uppseldir.