sudurnes.net
Megatalent frá Reykjanesbæ í Jólastjörnunni 2016 - Myndband! - Local Sudurnes
Perla Sóley Arinbjörnsdóttir, 16 ára nemi við Fjölbrautarskóla Suðurnesja, gerði sér lítið fyrir og heillaði dómarana í Jólastjörnunni 2016 upp úr skónum með frábærri framistöðu í þættinum sem sýndur var á Stöð 2 á dögunum. Til að taka þátt þurftu þátttakendur senda myndband af sér að syngja á skráningarsíðu Jólastjörnunnar á Vísi. Þátttakendur sungu lag að eigin vali, með sínu nefi og sendu inn hlekk á myndbandsupptöku, og var Perla Sóley valin til þátttöku á grundvelli myndbandsins sem sjá má hér fyrir neðan. Hún söng síðan tvö lög fyrir dómnefndina sem skipuð er þeim Björgvini Halldórssyni, Gissuri Páli og Jóhönnu Guðrúnu. Jóhanna Guðrún var yfir sig hrifin af söng Perlu Sóleyjar og hafði á orði að hér væri á ferðinni sannkallaður megatalent. Meira frá SuðurnesjumHeilsuleikskólinn Háaleiti stýrir Erasmus+ verkefniCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðLeoncie tekur lagið í Reykjanesbæ í kvöldGullaldarlið Þróttar Voga Cup meistarar 2016 eftir vítaspyrnukeppni – Myndir!Karlakórinn rokkar með Eyþóri Inga – Geta bætt við sig allt frá dýpsta bassa upp í bjartasta tenórByggja 6000 fermetra hundagerðiKeflavíkurnætur 12.-14. ágúst – Þýski diskóboltinn Haddaway kemur framVinsælustu tónlistarmenn landsins á HeimatónleikumElíza á TrúnóVox Felix í undanúrslitum Kórar Íslands á sunnudag – Myndband!