Nýjast á Local Suðurnes

Með Soul í auga á Ljósanótt – Einvalalið tónlistarmanna tekur þátt í sýningunni

Soul tónlist allra tíma er viðfangsefni tónleikaraðarinnar ,,Með blik í auga” þetta árið sem gengið hefur fyrir fullu húsi á Ljósanótt í Reykjanesbæ undanfarin 6 ár.

Það má því búast við miklu stuði, trega og urrandi ástarjátningum í boði tónlistarmanna eins og Stevie Wonder, Arethu Franklin, Otis Redding og Van Morrison, svo fáeinir séu nefndir. Einvalalið söngvara og hljóðfæraleikara tekur þátt í sýningunni og eru söngvarar í ár þau Jóhanna Guðrún, Stefanía Svavars, Jón Jónsson, Eyþór Ingi og Helgi Björns.

Hljómsveitarstjóri er Arnór B. Vilbergsson og kynnir er að venju Kristján Jóhannsson sem farið hefur á kostum hingað til.

Sýningar fara fram í Andrews leikhúsinu á Ásbrú og er frumsýning 30. ágúst kl.20:00.

Tvær sýningar verða sunnudaginn 3. september kl. 16:00 og 20:00.

Miðasala á sýninguna hefst á slaginu klukkan 12:00 þann 9. ágúst næstkomandi og er hægt að tryggja sér miða hér.