Mammút á lokatónleikum Látum okkur streyma
Hljómahöll og Rokksafn Íslands hafa boðið landsmönnum upp á ýmsa tónlistartengda viðburði í gegnum streymi á netinu undanfarnar vikur en fernum tónleikum hefur verið streymt á netinu auk þess sem þeir hafa verið sýndir í sjónvarpi og útvarpi.
Tónleikarnir eru enn aðgengilegir á Facebook-síðu Hljómahallar og í Sarpinum á ruv.is.
Ákveðið var að halda áfram með tónleikaröðina Látum okkur streyma og nú er komið að lokatónleikum hvar Mammút stígur á svið.
Tónleikadagskrá í beinni útsendingu á Facebook-síðu Hljómahallar, RÚV2, Rás 2 og ruv.is