Nýjast á Local Suðurnes

Mæta Kópavogi í undanúrslitum Útsvars

Lið Reykjanesbæjar og Kópavogs mæta í síðustu viðureign undanúrslitakeppninnar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaga á RUV. Lið Reykjanesbæjar skipa Kristján Jóhannsson, Valgerður Björk Pálsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.  Liðið á góða möguleika á því að komast í úrslitaviðureignina þann 25. janúar.

Liðið hefur staðið sig vel í vetur og unnið tvær viðureignir, á móti Hálendinu og Ísafjarðarbæ. Bæjarbúar eru hvattir til að standa vel við bakið á liðinu og hvetja það til dáða. Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með liðinu í sjónvarpssal þurfa að vera mættir í Útvarpshúsið Efstaleiti eigi síðar en klukkan 19:10.