sudurnes.net
Ljósanótt með svipuðu sniði - Framlag bæjarbúa skipar sífellt stærra hlutverk - Local Sudurnes
Menningarráð Reykjanesbæjar lagði til á fundi sínum þann 11. maí síðastliðinn að umsjón og framkvæmd Ljósanætur verði á svipuðum nótum og á síðasta ári, um leið og nýjar hugmyndir frá íbúfundi í vetur verði hafðar í huga. Ráðið telur ljóst að hátíðin færist sífellt meira í þá átt að verða svokölluð „þátttökuhátíð“ og skipar framlag bæjarbúa sífellt stærra hlutverk. Ráðið lýsti ánægju sinni með þá þróun á síðasta fundi sínum og hvetur fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að setja mark sitt á hátíðina. Sumir leggja til viðburði og vinnu á meðan aðrir leggja til fjármagn og saman gera bæjarbúar þetta að flottustu fjölskyldu- og menningarhátíð landsins. Ráðið vekur athygli á að nokkrir viðburðir eru orðnir fastir og mega ekki missa sín: Fimmtudagur: Setning hátíðarinnar með öllum nemendum bæjarins við Myllubakkaskóla. Sölutjöldin sett upp, og kvöldopnanir verslana. Opnanir myndlistarsýninga í Duus Safnahúsum o.fl. stöðum. Föstudagur: Kjötsúpan og létt dagskrá á hátíðarsvæði. Tónleikar á vegum íbúanna víða um bæinn, heimahús og veitingahús. Laugardagur: Árgangagangan Útiskemmtun á Bakkalág Stórtónleikar á útisviði á Bakkalág. Sunnudagur: Tónleikar og sýningar víða um bæinn. Meira frá SuðurnesjumHögni Egilsson með tónleika í Hljómahöll í kvöldCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðKrakkakosningar 12. – 14. maíPáll B. Baldvinsson heldur fyrirlestur [...]