sudurnes.net
Leikskólinn Holt fær viðurkenningu fyrir eTwinning verkefni - Local Sudurnes
Í gær veitti Rannís, Landsskrifstofa eTwinning á Íslandi 10 skólum á öllum skólastigum gæðaviðurkenningar menntaáætlunar Evrópusambandsins við hátíðlega athöfn í Ásmundarsafni. Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ fékk verðlaun fyrir verkefnið um Greppikló en einn annar skóli fékk einnig verðlaun og var það leikskólinn Krókur í Grindavík. Anna Sofia, deildarstjóri á Lundi átti frumkvæði að eTwinning samstarfi á Holti og hefur smátt og smátt fengið aðra kennara með sér. Sigurbjört Kristjánsdóttir, deildarstjóri á Dal hélt að mestu leiti utan um verkefnið um Greppikló sem tókst einstaklega vel og þótti við hæfi að verðlauna það sérstaklega, segir á heimasíðu leikskólans. Á myndinni eru Sigurbjört og Anna Sofia fyrir miðju og Heiða Ingólfsdóttir leikskólastjóri er við hlið þeirra. Fræðslustjórinn í Reykjanesbæ, Helgi Arnarson og leikskólafulltrúinn Kristín Helgadóttir voru stolt af sínu fólki en Kristín er fyrrverandi leikskólastjóri á Holti. Meira frá SuðurnesjumLeikskólinn Holt tilnefndur til Evrópuverðlauna fyrir lestrarverkefniCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðLeikskólinn Holt fékk gæðaviðurkenningu Erasmus+Leikskólinn Holt hlýtur gæðamerki eTwinningSumarhátíð á leikskólanum Holti – Myndir!Erlendir kennarar heimsóttu leikskólann Holt – Leiðir til fjölbreyttara leikskólastarfsSafna heimildum um setuliðið á MiðnesheiðiLeikskólabörn ræddu breytingar á Ljósanótt við bæjarstjóraPólsk menningarhátíð hafin í ReykjanesbæBlöðrur á Ljósanótt