sudurnes.net
Lasertag og kajakkennsla á leikjanámskeiði - Local Sudurnes
Skemmtigarðurinn heldur skemmtilegt sumar og leikjanámskeið við Seltjörn í Reykjanesbæ. Námskeiðið er haldið við útivistarsvæðið Seltjörn við Grindavíkur afleggjara. Í námskeiðinu erum við að dvelja úti í náttúrunni þar sem við leikum okkur í þeim vinsælu afþreyingum sem Skemmtigarðurinn hefur boðið upp á síðustu ár. Þar má nefna Kajak kennsla (eingöngu eldri hópurinn), hópeflisleikir, lasertag, bogfimi, spjaldtölvuleikir, frísbígolf og margt fleira. Hver dagur er byggður upp að við leikum okkur saman í margskonar fjöri, borðum nesti í hádeginu og endum daginn aftur í leik, segir á vef fyrirtækisins. Síðasta daginn verður uppskeruhátíð þar sem grillaðar verða pylsur og búið til candyfloss. Hvert námskeið eru 5 dagar í senn og fleiri námskeið verða í boði ef lágmarksfjölda er náð. Námskeiðið er tvískipt: 8-11 ára ​Byrja kl 09:00 12-14 ára ​Byrja kl 10:00 8-11 ára námskeiðið er frá 09:00 – 13:00 12-14 ára námskeiðið er frá 10:00 – 14:00 Júní: 1. námskeið: 8. – 12. Júní 2. námskeið: 22. – 26. Júní Júlí: 3. námskeið: 6. – 10. Júlí Ágúst: 4. námskeið: 10. – 15. Ágúst *takmarkað pláss í boði ​ Verð: 19.500 kr á hvert barn ATH – Hægt er að fá niðurgreiðslu á námskeiðinu með Hvatagreiðslum frá Reykjanesbæ. Greiða þarf þá fyrir námskeiðið og afhenda kvittun [...]