Nýjast á Local Suðurnes

Lasertag og kajakkennsla á leikjanámskeiði

Skemmtigarðurinn heldur skemmtilegt sumar og leikjanámskeið við Seltjörn í Reykjanesbæ.

Námskeiðið er haldið við útivistarsvæðið Seltjörn við Grindavíkur afleggjara.
Í námskeiðinu erum við að dvelja úti í náttúrunni þar sem við leikum okkur í þeim vinsælu afþreyingum sem Skemmtigarðurinn hefur boðið upp á síðustu ár.

Þar má nefna Kajak kennsla (eingöngu eldri hópurinn), hópeflisleikir, lasertag, bogfimi, spjaldtölvuleikir, frísbígolf og margt fleira.

Hver dagur er byggður upp að við leikum okkur saman í margskonar fjöri, borðum nesti í hádeginu og endum daginn aftur í leik, segir á vef fyrirtækisins.

Síðasta daginn verður uppskeruhátíð þar sem  grillaðar verða pylsur og búið til candyfloss.

Hvert námskeið eru 5 dagar í senn og fleiri námskeið verða í boði ef lágmarksfjölda er náð.

Námskeiðið er tvískipt:

  • 8-11 ára
    • ​Byrja kl 09:00
  • 12-14 ára
    • ​Byrja kl 10:00

8-11 ára námskeiðið er frá 09:00 – 13:00  
12-14 ára námskeiðið er frá 10:00 – 14:00 

Júní:
1. námskeið: 8. – 12. Júní
2. námskeið: 22. – 26. Júní

Júlí:
3. námskeið: 6. – 10. Júlí

Ágúst:
4. námskeið: 10. – 15. Ágúst

*takmarkað pláss í boði


Verð:
19.500 kr á hvert barn
ATH – Hægt er að fá niðurgreiðslu á námskeiðinu með Hvatagreiðslum frá Reykjanesbæ.
Greiða þarf þá fyrir námskeiðið og afhenda kvittun á skrifstofu Reykjanesbæjar. 

Innifalið í námskeiðinu:

  • Matur síðasta daginn.
  • Skutl til og frá Bónus Reykjanesbæ Fitjum – rútan leggur af stað um leið og námskeiðið á að byrja. Annað hvort kl 09:00 eða kl: 10:00


Það sem börnin þurfa að taka með sér:

  • Útiföt eftir veðri og góða skó.
  • Föt til skiptanna, handklæði.
  • Nesti fyrir 4 daga – á föstudeginum verða grillaðar pylsur.