sudurnes.net
Landsmótsgestir hafa verið áberandi í Grindavík - Local Sudurnes
Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar er nú í fullum gangi í Grindavík og er búið að slá upp gríðar stórri tjaldborg á rollutúninu við Austurveg þar sem um 400 ungmenni eiga sínar bækistöðvar næstu daga og fram á sunnudag. Ungmennin hafa margt fyrir stafni á meðan á landsmótinu stendur og hafa verið áberandi út um allan bæ. Það er mikið fjör á Landsmóti unglingadeilda Landsbjargar. Þessi pistill frá Otta Rafni Sigmarssyni, umsjónarmanni unglingadeildarinnar hjá björgunarsveitinni Þorbirni, var birtur á heimasíðu Grindavíkurbæjar: „Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur trúlega ekki farið framhjá neinum sem ekur eða gengur um götur Grindavíkur enda iðar allt af lífi. Þátttakendur á mótinu koma frá öllum landshlutum og telja tæplega 400 einstaklinga sem öllum hefur verið skipt upp í níu hópa. Hver hópur fer svo á milli stöðva þar sem annarsvegar eru æfð ýmis handtök sem tengjast björgunarmálum eins og bjargsig, klifur, meðferð báta og fyrstahjálp og hinsvegar stöðvar þar sem keppt er í ýmsum greinum eins og stórsekkjahlaupi, björgunarbátatroðningi og kassahlaupi. Mótsgestir hafa verið gríðarlega heppnir með veður en árið 1997 þegar svona mót var haldið í Grindavík síðast þurfti að pakka saman öllum tjöldum og flytja allt fólkið í gistingu í íþróttahúsinu vegna fárveðurs og úrkomu. [...]