sudurnes.net
Kósý-jólatónleikar til styrktar Heiðu Hannesar - Local Sudurnes
Kósí-jólatónleikar til styrktar Heiðu Hannesdóttur verða haldnir laugardagskvöldið 12.desember kl.21:00, á Café Rosenberg. Allur ágóði af tónleikunum mun renna í styrktarsjóð Heiðu Hannesar. Bjarnheiður lenti í hjartastoppi rétt fyrir jólin 2012 og þarf hún mikla aðstoð við öll dagleg störf. Fjöldi flottra tónlistarmanna mun gefa vinnu sína á tónleikunum, m.a. bræður hennar Helgi Már píanóleikari og Arnar Dór söngvari. Einnig koma fram meðal annara söngvararnir Alma Rut, Heiða Ólafsdóttir, Sigurður Ingimarsson, Berglind Magnúsdóttir og Ragnhildur Veigarsdóttir. Heiða fékk heimsókn frá sendiherra Íslands á Indlandi Heiða hefur undanfarið dvalið á Indlandi þar sem hún gengst undir stofnfrumuaðgerð og stundar sjúkraþjálfun, hún og maður hennar, Snorri Hreiðarsson hafa haldið úti heimasíðu þar sem hægt er að fylgjast með gangi mála, þar kemur meðal annars fram að vel hafi gengið í ferðinni: Heiðu hefur gengið vel á æfingum og helstu framfarir hennar eru að ýta grindinni áfram og einnig er sjónin enþá að lagast, sem er auðvitað alveg geggjað, hún segir að þegar hún einbeitir sér þá sér hún nánast allt andlitið á mér, henni auðvitað til mikillar skelfingar, sko að sjá á mér allt andlitið en þetta eru stórtíðindi að sjónin sé ennþá að lagast. Við viljum þakka öllum þeim sem veitt hafa okkur stuðning, [...]