Nýjast á Local Suðurnes

Körfuboltaskemmtunin Stay´n Alive í Keflavík 19. ágúst

Körfuboltaskemmtun fer fram í Íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík þann 19. ágúst næstkomandi en viðburðurinn er fjáröflunarkvöld fyrir Pétur Pétursson osteopata sem nú glímir við erfið veikindi.

Vinum Péturs langar til þess að styðja við bakið á honum og fjöldskyldu hans með skemmtilegu kvöldi í Keflavík þar sem A-landslið kvenna mætir pressuliði, þriggjastigakeppni verður á boðstólunum, Páll Óskar tekur lagið, A-landslið karla mætir einnig pressuliði, uppboð á treyjum og lotterý þar sem veglegur vinningur frá Icelandair er í boði.

Aðgangseyrir er kr. 2000,- og þá verður einnig tekið á móti frjálsum framlögum. Þeir sem sjá sér ekki fært um að mæta á viðburðinn geta stutt Pétur og fjölskyldu í baráttu sinni með því að leggja inn á eftirfarandi söfnunarreiking:
142-15-382891, Kt: 041074-3969.

fjaroflun karfa