Nýjast á Local Suðurnes

Kjötsúpa og kvölddagskrá á nýjum stað

Kvölddagskrá föstudagskvölds Ljósanætur og kjötsúpa Skólamatar munu færast frá smábátahöfninni í Gróf að gatnamótum Hafnargötu 30 og Tjarnargötu. Með þessu mun sveitarfélgið nýta svið sem eigendur skemmtistaðarins H30 setja upp undir hina hefðbundnu föstudagsdagskrá bæjarins í stað þess að sett væri upp sérstakt svið undir hana.

Í tilkynningu frá Reykjanesbæ segir að kveikjan að þessari breytingu sé til komin vegna þess sviðs sem sett var upp í fyrra við Hafnargötu 30 þar sem full dagskrá gekk bæði föstudagskvöld og allan laugardaginn og þótti takast vel á síðasta ári. Í framhaldinu kviknaði sú hugmynd að koma á samstarfi við þetta vel heppnaða einkaframtak skemmtistaðarins H30 og nýta sviðið undir hina hefðbundnu föstudagsdagskrá bæjarins í stað þess að sett væri upp sérstakt svið undir hana. Fyrirtækið Skólamatur tók vel í breytinguna og verða því bæði kjötsúpan og kvölddagskrá föstudagskvölds á nýjum stað að þessu sinni í góðu skjóli frá háum byggingum Hafnargötunnar.