sudurnes.net
Keppendur frá Suðurnesjum í "Grillsumrinu mikla" - Atkvæðagreiðsla stendur yfir - Local Sudurnes
Þessa dagana stendur yfir atkvæðagreiðsla í grillkeppninni „Grillsumarið mikla“ en það eru grillþættir sem sýndir voru á MBL Sjónvarpi og Youtube í sumar. Meðal keppnisliða eru lið frá Suðurnesjum – Til að greiða Suðurnesjaliðunum atkvæði þarf að fara inn á heimasíðu Grillsumarsins og smella einu „like-i“ á annað hvort liðið eða bara bæði. Liðið úr Grindavík heitir “Svakasnöggir” og töfruðu þeir félagar fram dýrindis „surf & turf“ ásamt grilluðum ávöxtum með súkkulaði í eftirrétt. Meðlimir “Soho Grillvinafélagsins” eru fimm ungir menn búsettir í Keflavík, þeir hafa sérstakan áhuga á grillmat og bjór og eru einstaklega gestrisnir. Þeir buðu upp á Grillað nauta ribeye frá Skare marineruð upp úr Filippo Berio Extra Virgin ólífuolíu með salti, pipar og fersku timmían. Myndböndin frá liðunum tveimur má sjá hér fyrir neðan: Meira frá SuðurnesjumCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðJónsdóttir & Co. kynnir ungbarnavörur úr lífrænni bómull á LjósanóttSoho Grillvinafélagið sakað um svindl í Grillsumrinu miklaÖskudagur got talent í Fjörheimum á öskudagBarnakór Grindavíkur 1977-1981 kemur saman á ný í MenningarvikunniMND félagið verðlaunar nemendur úr Heiðarskóla og NjarðvíkurskólaFerskir vindar í Garði í fjórða sinn900 númerin loka á morgun – En Sigvaldi safnar áfram fyrir UmhyggjuMinja- og sögufélag Grindavíkur hlýtur Menningarverðlaunin 2017Hljóðbylgjan og SkjárTV með öfluga [...]