sudurnes.net
Kennarar og nemendur FS taka þátt í Mottumars - Local Sudurnes
Mottumars átakið er í fullum gangi um þessar mundir, en eins og flestum er kunnugt er verkefnið á vegum Krabbameinsfélags Íslands og liður í baráttunni gegn krabbameini hjá karlmönnum, en árlega greinast um 750 karlmenn með krabbamein á Íslandi. Kennarar og nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja taka þátt í verkefninu að þessu sinni og er liðið á meðal þeirra efstu í söfnuninni um þessar mundir. Hægt er að ganga til liðs við FS eða styrkja liðið með því að kíkja á síðu liðsins. Alls söfnuðust tæplega 46,3 millijónir í átaki Mottumars 2015 og var um helmingi fjárins veitt til rannsókna. Meira frá SuðurnesjumCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðReykjanesbær leitar að fulltrúum til að taka þátt í ÚtsvariLitla Gula hænan sýnd í Grindavík í dagUmhverfisverðlaun Grindavíkurbæjar – Geo Hotel fékk verðlaun fyrir vel heppnaðar breytingarYfirlitssýning um feril Björgvins Halldórssonar í RokksafninuNý íslensk kvikmynd tekin upp í GrindavíkVefurinn Sumar í Reykjanesbæ kominn í loftið53 útskrifuðust frá FS – Sylvía Rut er dúx haustannarPrjóna fyrir leikskólabörn í ReykjanesbæÍbúi númer 15.000 þúsund bætist í hópinn um helgina