Nýjast á Local Suðurnes

Húsfyllir á styrktarkvöldi Heiðu Hannesar

Það er óhætt að segja að mikið fjör hafi verið á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi síðastliðið laugardagskvöld en þá hélt Hermann Ragnarsson múrarmeistari, betur þekktur sem Hemmi Ragnars, upp á sextugs afmælið sitt. Hann hafði ákveðið að afþakka afmælisgjafir en bjóða fólki frekar upp á að styrkja Heiðu Hannesdóttur, sem glímt hefur við erfið veikindi eftir að hafa fengið hjartastopp árið 2012.

Skemmtidagskráin á afmælis- og styrktarkvöldinu var ekki af verri endanum en á meðal þeirra sem komu fram voru uppistandarinn Ari Eldjárn, Eurovisionfarinn Friðrik Dór og Arnar Dór. Veislustjóri var Örvar Kristjánsson.

Eins og sést á myndinni sem fylgir fréttinni mætti fjöldi fólks á svæðið og naut skemmtiatriðanna og styrkti um leið gott málefni.

styrktarkvöld heidu

Hermann Ragnarsson og Heiða Hannesdóttir