sudurnes.net
Hreyfivikan í Grindavík verður dagana 23.-29. maí - Local Sudurnes
Grindavíkurbær tekur þátt í Hreyfiviku (Move Week) þriðja árið í röð. Tímasetning hennar hefur breyst, Hreyfivikan var á haustin en hefur verið færð að vori til. Hreyfivikan í ár verður dagana 23.-29. maí n.k. Tilgangur Hreyfivikunnar er að hvetja til virkrar hreyfingar og þátttöku í íþróttum þannig að fólk hreyfi sig a.m.k. 30 mínútur á dag. Grindavíkurbær hvetur alla þá sem vilja bjóða upp á viðburði í Hreyfivikunni, einstaklingar, stofnanir, félagasamtök eða fyrirtæki, til þess að senda upplýsingar á thorsteinng@grindavik.is, í seinasta lagi 10. maí n.k. Viðburðurinn verður þá birtur í dagskrá Hreyfivikunnar. Einn liður í vikunni er sundkeppni á milli sveitarfélaga. Árið 2015 tóku 28 sveitarfélög virkan þátt í keppninni og syntu 4.300 einstaklingar samanlagt 4.900 kílómetra sem er álíka langt og frá Íslandi til New York! Það eru samtökin International Sport and Culture Association (ISCA) sem standa fyrir verkefninu en Ungmennafélag Íslands fylgir því eftir hérlendis. Skipuleggjendur Hreyfivikunnar í Grindavík eru frístunda- og menningarsvið Grindavíkurbæjar í samstarfi við forvarnarteymi UMFG, skóla, félög, stofnanir og ýmsa fleiri aðila sem koma að hreyfingu á einn eða annan hátt. Í haust er svo stefnt að því að halda forvarnar- og heilsuviku í Grindavík. Meira frá SuðurnesjumGrindvíkingar kynna hreyfivikuna á morgunverðarfundi í fyrramáliðLesið fyrir [...]