sudurnes.net
Heimildarmynd um Reyni sterka verður dreift á heimsvísu - Myndband! - Local Sudurnes
Heimildarmynd leikstjórans Baldvins Z um aflraunamanninn Reyni sterka verður frumsýnd þann 10. nóvember næstkomandi. Myndin fjallar um ævi Reynis Arnar Leóssonar, uppvaxtarár, afrek og heimsmet, og óregluna sem heltók líf hans þar til hann lést langt fyrir aldur fram. Reynir fæddist árið 1939 og lést árið 1982, og var banamein hans lungnakrabbi. Hann setti þrjú heimsmet á ævinni, sem öll rötuðu í heimsmetabók Guinness og standa enn þegar þetta er skrifað. Baldvin Z hefur unnið að myndinni frá árinu 2009. RÚV kemur að framleiðslu verkefnisins og mun sýna hana þegar fram líða stundir. Þá hefur framleiðslufyrirtæki Baldvins, Glassriver, gert samning við DR Sales um dreifingu myndarinnar á heimsvísu. Meira frá SuðurnesjumCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðAllir með! hefst í dagKósý-jólatónleikar til styrktar Heiðu HannesarEinstök myndlistarsýning í Duus SafnahúsumPáll B. Baldvinsson heldur fyrirlestur um bókina Stríðsárin 1938-1945Hjörleifur Már endaði í liði Helga Björns í The VoiceMargt um manninn á sögustund í Bókasafni ReykjanesbæjarMugison heldur tónleika í Stapa – Gestir fá eintak af nýju plötunniArnar Dór í Hljómahöll á fimmtudagskvöld – Örfáir miðar eftir!Palla-ball og Voice stjarnan Ellert Heiðar á Sjóaranum síkáta