sudurnes.net
Grunnskólar settir á mánudag - 250 börn hefja skólagöngu í Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Grunnskólar Reykjanesbæjar verða settir mánudaginn 22. ágúst næstkomandi og munu tæplega 250 börn þá hefja grunnskólagöngu sína. Þetta skólaár verða rúmlega 2200 nemendur í grunnskólanámi í Reykjanesbæ en voru 2074 á síðasta skólaári, því er um að ræða töluverða fjölgun á milli ára. Nánari upplýsingar um tímasetningar og fyrirkomulag skólasetninga er að finna á heimasíðum skólanna. Foreldrar nemenda í 1.- 4. bekk, sem óska eftir frístundavistun fyrir börn sín og hafa enn ekki sótt um, eru beðnir að sækja um fyrir skólabyrjun í gegnum mittreykjanes.is eða á skrifstofum skólanna. Athugið að sækja þarf um fyrir börnin fyrir hvert nýtt skólaár. Hér má nálgast upplýsingar um grunnskólana og skólahverfi. Meira frá SuðurnesjumUppselt á Í Holtunum heimaSíðasta kvöldmáltíðin flutt á Skírdag – Sviðslistaverk í formi gönguferðarMannfélagið – Sumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar opnar 4. júníCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðGötulokanir vegna bæjarhátíðarDorgveiðikeppni á LjósanóttJón og Gunnar með tónleika í tilefni 50 ára afmælis StapaEyþór Ingi heldur aukatónleikaStöðug fjölgun íbúa í GrindavíkPrjóna fyrir leikskólabörn í Reykjanesbæ