sudurnes.net
Fögnuðu flottum breytingum á Eldey Hotel - Myndir! - Local Sudurnes
Eldey Hotel á Ásbrú fagnaði á dögunum stórum áfanga þegar framkvæmdum við breytingar á hótelinu lauk, en unnið hefur verið hörðum höndum undanfarna mánuði að því að mála öll herbergi, skipta út öllum rúmum og skreyta veggi meðal annars með ljósmyndum af Reykjanesinu. Hótelið, sem áður hét Heilsuhótel Íslands er í eigu Péturs Björnssonar, konu hans og barna þeirra og eru það systurnar Sunna Guðrún og Bryndís Pétursdætur sjá um daglegan rekstur hótelsins. „Við erum mjög stolt af árangrinum og nýja útlitinu,“ sagði Sunna Pétursdóttir í samtali við Suðurnes.net „Við bjóðum upp á gistingu í 49 herbergjum og er geymsla á bíl innifalin í verðinu. Aðstaðan er líka mjög flott, en á hótelinu eru heitir pottar, infra rauð sauna og bar. Það má því segja að þetta sé góður kostur, bæði fyrir hópa sem vilja njóta þess sem Reykjanesið hefur upp á að bjóða, eða fyrir fólk sem er að ferðast til og frá Keflavíkurflugvelli.“ Sagði Sunna. Meðfylgjandi myndir voru teknar í hófinu, en fjöldi fólks mætti á svæðið auk þess sem stórsöngvarinn Valdimar Guðmundsson mætti og tók nokkur lög. Meira frá SuðurnesjumLöngu uppselt á þorrablót íþróttafélaganna – Svona gætirðu nælt í miða!Courtyard hlýtur eftirsótt [...]