sudurnes.net
Fjölmennasta útskriftarár Keilis frá upphafi - Local Sudurnes
Keilir útskrifaði 163 nemendur við hátíðlega athöfn á Ásbrú föstudaginn 10. júní. Við athöfnina brautskráðust nemendur úr Háskólabrú, Íþróttaakademíu og Flugakademíu, auk nemenda í leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku á vegum Thompson Rivers University og Keilis. Með útskriftinni hafa 267 nemendur lokið námi frá skólum Keilis á árinu og stefnir í að þeir verði orðnir rúmlega 300 talsins í sumar, þar sem enn á eftir að brautskrá nemendur af verk- og raungreinadeild Háskólabrúar Keilis, auk nemenda í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis. Aldrei hafa jafn margir einstaklingar lokið námi í Keili á einu ári síðan skólinn hóf starfsemi sína árið 2007. Háskólabrú Keilis útskrifaði í allt 60 nemendur úr þremur deildum, þar af sjö fjarnámsnemendur. Soffía Waag Árnadóttir, forstöðumaður Háskólabrúar, flutti ávarp. Dúx var Erna Björt Árnadóttir með 9,5 í meðaleinkunn. Fékk hún bók frá Íslandsbanka og lesbretti frá Keili sem viðurkenningu fyrir námsárangur. Rósa Björk Ágústsdóttir nemandi á félagsvísinda- og lagadeild flutti ræðu útskriftarnema. Með útskriftinni hafa samtals 1.403 nemendur útskrifast úr Háskólabrú Keilis og hafa lang flestir þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. Flugakademía Keilis útskrifaði 27 atvinnuflugmannsnemendur. Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíunnar, flutti ávarp. Dúx var Kolbeinn Ísak Hilmarsson með 9,77 í meðaleinkunn, en það er næst hæsta einkunn [...]