Nýjast á Local Suðurnes

Ferskir vindar í Garði í fjórða sinn

Listaverkefnið Ferskir vindar er nú að fara af stað í fjórða skiptið í Garðinum. Sem fyrr er listrænn stjórnandi og umsjónarmaður verkefnisins Mireya Samper. Fyrstu listamennirnir eru mættir í Garðinn en hópurinn, sem telur yfir 50 listamenn frá öllum heimshornum, munu halda til á Garðvangi þetta skiptið.

Listaverkefnið Ferskir vindar í Garði var fyrst haldið áramótin 2010 – 2011 og hefur verið haldið annað hvert ár síðan. Árið 2012 var hópurinn hér í Garðinum í maí og júní en öll hin skiptin hafa listamennirnir verið í Garði yfir áramót.

Verkefnið snýst um það að 50 listamenn frá öllum heimshornum koma í Garðinn, búa hér og vinna að sinni list í um 5 vikur.

Mörg verk prýða Garðinn í dag eftir fyrri skipti Ferskra vinda og eru í eigu Garðs.

Allt áhugafólk um sköpun og listir er hvatt til að koma í Garðinn og kíkja inn á vinnustofur listamanna, fylgjast með þeim við sína vinnu og fá sér kaffi og ræða málin.

Sýningar verða svo opnaðar laugardaginn 9. janúar 2016, kl. 14:00 á efri hæð að Sunnubraut 4.