sudurnes.net
Ferskir vindar hlutu viðurkenningu á Eyrarrósinni 2016 - Local Sudurnes
Listahátíðin Ferskir vindar sem haldin er annað ár hvert í Garði var tilnefnd til Eyrarrósarinnar í ár, hátíðin náði ekki að hreppa aðalverðlaunin að þessu sinni en fékk þó afhenta viðurkenningu við verðlaunaafhendinguna. Ferskir vindar fengu að launum 300 þúsund króna styrk og flugferðir með Flugfélagi Íslands. Mireya Samper, stjórnandi Ferskra vinda tók við viðurkenningu. Mynd: Olivier Rossetti Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík. Meira frá SuðurnesjumCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðReykjanesbær myndaður með dróna – Sjáðu Myndirnar!Óska eftir tilnefningum um Bæjarlistamann GrindavíkurGöngutúr Sigvalda skilaði tveimur milljónum króna til UmhyggjuGóð mæting á fyrirlestur Jóns Jónssonar um fjármálGarðbúar duglegir að skreyta húsin á SólseturshátíðinniEldklár eftir brunaæfingu í Grindavík – Myndir!Lögreglumenn brugðu á leik á Sólseturshátíð í Garði900 númerin loka á morgun – En Sigvaldi safnar áfram fyrir UmhyggjuÓkeypis inn á öll söfn á Safnahelgi á Suðurnesjum