sudurnes.net
Fámennt en góðmennt í Jónsmessugöngu Grindavíkurbæjar og Bláa lónsins - Local Sudurnes
Margir samverkandi þættir gerðu það að verkum að heldur fámennt var í Jónsmessugöngu Grindavíkurbæjar og Bláa lónsins síðastliðinn laugardag, en um 50 manns lögðu leið sína upp á Þorbjörn þetta kvöld. Veðurspáin var ekki góð, og þá voru bæði forsetakosningar í fullum gangi sem og stórleikur á Evrópumótinu í knattspyrnu. Á vef Grindavíkurbæjar kemur fram að þeir sem þó lögðu á fjallið hafi ekki verið sviknir af upplifuninni. Ingó veðurguð mætti og spilaði og söng eins og algjör fagmaður og hélt uppi góðri stemningu. Þegar hann hafði spilað í um 45 mínútur hafði bætt enn meira í vindinn og úrkomu svo að hópurinn hélt áfram göngu og voru menn fegnir því að komast ofan í heitt og notalegt lónið eftir hressandi göngu. Meira frá SuðurnesjumJónsmessuganga Bláa lónsins á laugardag – Ingó Veðurguð tekur lagiðYfir 200 manns mættu í árlega göngu Bláa lónsins og GrindavíkurbæjarLjósanótt: Bæjarstjórnarbandið snýr afturÖflug dagskrá á Ránni á 34 ára afmæliKeflvíkingar þjófstörtuðu þorra með geggjaðri flugeldasýningu – Myndband!Það breytir lífi þínu að heimsækja Grindavík að mati Inc. MagazineLeoncie tekur lagið í Reykjanesbæ í kvöldNettó gefur súpu á Menningarnótt – Nýta hráefni sem komið er á síðasta söludagCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðÞrettándinn með breyttu sniði