Ert þú næsta Rauðhetta? – Kynning hjá Leikfélagi Keflavíkur
Miðvikudaginn 9. september mun fara fram almennur félagsfundur hjá Leikfélagi Keflavíkur þar sem haustverkefni félagsins, Rauðhetta, verður kynnt. Fundurinn hefst kl. 20:00 í Frumleikhúsinu að Vesturgötu 17. Allir 16 ára og eldri sem hafa áhuga á að taka þátt í einhverju tengdu uppsetningunni eru velkomnir.
Víkingur Kristjánsson mun leikstýra Rauðhettu hjá Leikfélagi Keflavíkur, en hann á að baki fjölmargar leiksýningar sem leikstjóri og leikari.
Þú þarft ekki að vera skráður leikfélagi til að taka þátt, allir eru velkomnir. Óskum eftir fólki í öll hlutverk. Smíðavinnu, förðun, búningahönnun, hljóðfæraleikara og margt meira, segir á Fésbókarsíðu leikfélagsins.