sudurnes.net
Erlendir kennarar heimsóttu leikskólann Holt - Leiðir til fjölbreyttara leikskólastarfs - Local Sudurnes
Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ hefur undanfarið ár tekið þátt í samstarfsverkefni fjögurra landa, svokölluðu Erasmus+ verkefni, sem meðal annars gengur út á að vinna með börnum í öllu sem tengist lýðræði og læsi. Nokkrir kennarar á vegum leikskólans fóru síðasta haust til Póllands og kynntu sér starfsemi leikskóla þar, nokkrir fara næsta haust til Spánar og svo fer síðasti hópurinn til Slóveníu vorið 2017. Í síðustu viku var komið að Holti að taka á móti erlendum gestum, 13 kennarar frá þremur löndum heimsóttu leikskólann í svokallað “Teacher training event in Iceland”. Erlendu gestirnir kynntu sér starfsemi leikskólans Kennararnir á Holti höfðu í nógu að snúast, segir í frétt á heimsíðu leikskólans, þeir héldu námskeið fyrir gestina um útinám og könnunaraðferðina, fóru í ferðir, sund og bláa lónið, út að borða og buðu heim til sín í mat svo dæmi séu tekin. Þá kemur fram í fréttinni að vikan hafi verið afar lærdómsrík og kennarar og nemendur á Holti hafi heldur betur bætt í reynslubankann. Börnin okkar tóku gestunum einstaklega vel og fengu gjafir frá gestunum á föstudaginn þar sem börnin kvöddu gestina formlega. Það sem kennarar geta lært af umræðum sín á milli, þrátt fyrir menningar- og aðstöðumun, er t.d. að geta séð eigin [...]