Nýjast á Local Suðurnes

Dúndurfréttir í Hljómahöll annað kvöld – Þú getur unnið miða á tónleikana!

Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur tónleika í Hljómahöll annað kvöld klukkan 20, en hljómsveitin hefur flutt lög sveita á borð við Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep. Hljómsveitin hefur síðustu ár haldið stóra tónleika í Eldborgarsal Hörpu þar sem fluttar hafa verið í heild sinni plötur Pink Floyd, Dark Side of the Moon, Wish You Were Here og The Wall. The Wall var flutt fjórum sinnum fyrir fullu húsi með sinfóníuhljómsveit og voru tónleikarnir gefnir út á DVD.

Á tónleikunum í Hljómahöll mun hljómsveitin leika klassískt rokk eins og það gerist best.

Hljómsveitina skipa: Matthías Matthíasson, Pétur Örn Guðmundsson, Einar Þór Jóhannsson, Ólafur Hólm og Ingimundur Óskarsson.

Hljómsveitin hefur skellt í leik á Facebook-síðu sinni, hvar áhugasamir geta unnið miða á tónleikan í Hljómahöll.