Nýjast á Local Suðurnes

Dagforeldrar fengu viðurkenningu á Degi um málefni fjölskyldunnar

Landsbankinn er fjölskylduvænasta fyrirtækið í Reykjanesbæ

Dagforeldrunum Hrönn Ásmundsdóttur, Margréti Stefánsdóttur og Huldu Guðmundsdóttur var veitt viðurkenning á Degi um málefni fjölskyldunnar fyrir 10 ára starfsaldur en dagurinn var haldinn hátíðlegur sl. laugardag. Þá fékk Landsbankinn í Reykjanesbæ viðurkenningu sem Fjölskylduvænt fyrirtæki 2016 en hann var tilefndur af starfsmönnum. Viðurkenningin var að þessu sinni ljósmynd eftir OZZO.

Kristín Helgadóttir leikskólafulltrúi, Hrönn Ásmundsdóttir og Margrét Stefánsdóttir dagforeldrara. Á myndina vantar Huldu Guðmundsdóttur.

Kristín Helgadóttir leikskólafulltrúi, Hrönn Ásmundsdóttir og Margrét Stefánsdóttir dagforeldrara. Á myndina vantar Huldu Guðmundsdóttur.

Dagur um málefni fjölskyldunnar var haldinn laugardaginn 12. mars í Fjölskyldusetrinu Skólavegi. Erindi um málefni fjölskyldunnar héldu þær Jasmina Crnac og Bryndís Jóna Magnúsdóttir. Þórey Ösp Gunnarsdóttir kynnti hvað stendur fjölskyldum til boða í Bókasafni Reykjanesbæjar. Dagskránni lauk á skemmtilegum söng frá Barnakór Tónlistaskóla Reykjanesbæjar undir stjórn Bylgju Dísar Gunnarsdóttur.

Alls sóttu daginn um 60 manns sem var hinn gleðilegasti í alla staði.