Nýjast á Local Suðurnes

Brenna og flugeldasýning á þrettándagleði

Reykjanesbær hvetur bæjarbúa til að fjölmenna í árlega þrettándagleði mánudaginn 6. janúar og eiga saman skemmtilega fjölskyldustund með púkum, álfum, Grýlu, jólasveinum og ýmsum öðrum kynjaverum.

Áður en dagskrá hefst eða  kl. 16:30 -17:50, verður boðið upp á skemmtilega luktarsmiðju í Myllubakkaskóla. Fólk tekur með sér krukku að heiman sem hægt verður að breyta í fallega lukt til að taka með sér í blysförina frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði á Hafnargötu. Allt efni og ljós (fyrir utan krukkuna sjálfa) fæst á staðnum. Verð fyrir efni er kr. 300 og greiðist með peningum á staðnum. Gengið er inn um inngang við Suðurtún. Allir velkomnir. 

Klukkan 18:00 verður gengið í fylgd álfakóngs og drottningar og hirðar þeirra frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði við Hafnargötu 8. Foreldrar eru hvattir til að leyfa börnunum að taka virkan þátt í gleðinni með því að klæða sig upp í ýmis gervi, jafnvel púkagervi og auðvitað að taka nýju luktina meðferðis í blysförina. Á hátíðarsvæðinu verður það sjálf Grýla gamla sem tekur á móti hersingunni, álfar munu hefja upp raust sína og syngja þrettándasöngva og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu.

Þrettándabrennan verður á sínum stað við Ægisgötu og gestum verður boðið upp á heitt kakó til að ylja sér. Jólin verða svo kvödd að hætti Björgunarsveitarinnar Suðurnes með glæsilegri flugeldasýningu eins og þeim er einum lagið.

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Júdódeild UMFN, Björgunarsveitin Suðurnes og lúðrasveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni. 

Bílastæði eru við Ægisgötu og Ráðhús, Tjarnargötu 12.