sudurnes.net
Bókakonfekt Bókasafnsins í kvöld - Jón Kalmann les upp úr nýrri bók sinni - Local Sudurnes
Í kvöld (26.nóvember) verður hið árlega Bókakonfekt Bókasafns Reykjanesbæjar haldið í Ráðhúsinu, Tjarnargötu 12. Rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson, Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Ásmundur Friðriksson lesa upp úr nýjustu bókum sínum. Þau tengjast öll Suðurnesjum á einn eða annan hátt. Eitthvað á stærð við alheiminn eftir Jón Kalman Stefánsson er framhald ættarsögunnar Fiskarnir hafa enga fætur en sögusvið bókanna teygist frá Norðfirði forðum til Keflavíkur nútímans. Tapað – fundið er fyrsta skáldsaga Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur. Bókin fjallar um lögfræðinginn Höllu Bryndísi sem, á ferð sinni til London, fær ranga ferðatösku við lendingu. Hvað gerir kona með ókunnugan fataskáp þegar mikið liggur við? Ásmundur les upp úr nýrri bók sinni um Hrekkjalómafélagið í Vestmannaeyjum Hrekkjalómafélagið: prakkarastrik og púðurkerlingar er 20 ára saga Hrekkjalómafélagsins í Vestmannaeyjum sem Ásmundur Friðriksson rekur. Í bókinni er undirbúningi hrekkjanna lýst, hrekkjunum sjálfum, viðbrögðum og afleiðingum þeirra. Gestum er boðið upp á jólastemningu með lifandi tónlist frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar auk þess sem boðið verður upp á kaffi og konfekt. Viðburðurinn er samstarfsverkefni almenningsbókasafnanna á Suðurnesjum og er dagskráin styrkt af Menningarráði Suðurnesja. Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Meira frá SuðurnesjumBókakonfekt 2019 – Fimm höfundar lesa upp úr bókum sínumErlingskvöld á Bókasafni Reykjanesbæjar – Bubbi Morthens les úr ljóðabókum [...]