sudurnes.net
Blysför og flugeldasýning á þrettándagleði í Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Reykjanesbær hvetur alla laumupúka til að sleppa fram af sér beislinu og fjölmenna á stræti út og sýna sitt rétta púkaandlit í árlegri þrettándagleði í Reykjanesbæ laugardaginn 6. janúar. Dagskráin er fjölbreytt að vanda, en hana má finna hér fyrir neðan: Blysför að hátíðarsvæði og börn í búningum Klukkan 17:00 verður gengið í fylgd álfakóngs og drottningar og hirðar þeirra frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði við Hafnargötu 8. Eins og flestum er kunnugt vita börn fátt skemmtilegra en að klæða sig upp í búninga. Eru foreldrar því hvattir til að leyfa börnunum að taka virkan þátt í gleðinni með því að klæða sig upp í ýmis gervi, jafnvel púkagervi og ekki væri verra ef þau hefðu heimagerðar luktir meðferðis í blysförina. Á hátíðarsvæðinu verður það sjálfGrýla gamla sem tekur á móti hersingunni, álfar munu hefja upp raust sína og syngja þrettándasöngva og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu. Brenna, kakó og piparkökur Þrettándabrennan verður á sínum stað á Bakkalág og gestum verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur til að ylja sér. Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes Jólin verða svo kvödd að hætti Björgunarsveitarinnar Suðurnes með glæsilegri flugeldasýningu eins og þeim er einum lagið. Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, [...]