Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða sameiginlega til menningardagskrár í tilefni 100 ára afmælis fullveldis Íslands

Fullveldishátíð Suðurnesja verður haldin í Bíósal Duus Safnahúsa laugardaginn 1.desember næstkomandi klukkan 16.00. Sveitarfélögin á Suðurnesjum bjóða sameiginlega til menningardagskrár í tilefni 100 ára afmælis fullveldis Íslands.

Menningarfulltrúar sveitarfélaganna ásamt verkefnisstjóra hjá Heklunni hafa undirbúið blandaða dagskrá sem samanstendur af tónlist, sögulegum fróðleik, leikþætti og gamanmálum.

Þeir sem fram koma eru Karlakór Keflavíkur, Leikfélag Keflavíkur, Eiríkur Hermannson sagnfræðingur og Jóhann Friðrik Friðriksson forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Ari Eldjárn lýkur svo samkomunni með gamanmálum eins og honum einum er lagið. Kynnir er Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi Reykjanesbæjar.

Hátíðarsamkoman er opin öllum Suðurnesjamönnum á meðan húsrúm leyfir og  aðgangur er ókeypis. Dagskráin er styrkt af Uppbyggingasjóði Suðurnesja.