Nýjast á Local Suðurnes

Barnahátíð og Skemmtigarðurinn í samstarf

Í stað hefðbundins fjölskyldudags á Barnahátíð, sem fella þurfti niður vegna samkomutakmarkana, hefur nú verið brugðið á það ráð í samstarfi við Skemmtigarðinn að bjóða upp á ótrúlega skemmtilegan þrautaleik fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ helgina 23. – 24.maí  og þjófstarta um leið Hreyfivikunni sem hefst formlega 25. maí.

Það eina sem þarf til að taka þátt er sími og að skrá sig til leiks.

Leikurinn verður opinn alla helgina og hægt er að hefja þátttöku hvenær sem fólki hentar.

Í boði eru 4 leikir; Njarðvík, Innri-Njarðvík, Keflavík og Ásbrú og Hafnir. Hægt er að velja hvaða leik  sama hvar fólk býr. Hægt er að spila einn leik, tvo, þrjá eða alla eftir hentisemi hverrar fjölskyldu.

Verðlaun verða veitt fyrir ýmsa þætti í leiknum auk þess sem heppnir þátttakendur verða dregnir út.

Fjölskyldur eru hvattar til að fara saman í góðan göngutúr og leysa ótrúelga skemmtilegar og auðveldar þrautir víðs vegar um bæinn.

Skráning fer fram hér