Nýjast á Local Suðurnes

Ásmundur sýnir myndlist á Menningarviku í Grindavík

Myndlistasýning hefur bæst við glæsilega dagskrá Menningarviku í Grindavík en  Ásmundur Friðriksson alþingismaður verður með sýningu á kaffihúsinu Bryggjunni. Sýningin ber yfirskriftina „Blítt og létt við Suðurströndina” og opnar formlega næsta föstudag 11. mars kl. 16.00. Sýningin verður opin út Menningarvikuna og jafnvel lengur.

Ásmundur sem fagnaði 60 ára afmæli sínu fyrir skömmu, hefur haldið nokkrar einkasýningar.

„Þó engin mynd sé frá Grindavík, nema andlitsmynd af Palla í Vísi, þá eru tengingar Eyjanna og Grindavíkur sterkar og það er mér í huga með sýningunni. Ég ætla jafnframt að sitja við og mála mynd á sýningunni þegar ég hef tíma,” segir Ásmundur sem býður alla velkomna á sýninguna.