sudurnes.net
Arnar Dór í úrslitum The Voice í kvöld - Local Sudurnes
Úrslitaþáttur The Voice Ísland fer fram í kvöld og að venju verður þátturinn tekinn upp á Ásbrú og sendur út í beinni útsendingu á Skjánum. Einn Suðurnesjamaður er enn með í baráttunni, en það er Arnar Dór Hannesson, sem á ættir sínar að rekja til Suðurnesja. Arnar Dór hefur staðið sig einstaklega vel í keppninni til þessa og verður að teljast nokkuð sigurstranglegur. Það eru þó áhorfendur sem velja sigurvegarann í kvöld, en hægt er að kjósa Arnar Dór, með því að hringja eða senda sms í númerið 900-1003. Vinir og aðdáendur Arnars Dórs ætlað að hittast á Ölstofu Hafnarfjarðar og horfa á keppnina og eru allir velkomnir. Meira frá SuðurnesjumHjörleifur Már endaði í liði Helga Björns í The VoiceCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðHjörleifur syngur í Voice Iceland í kvöld – Tryggðu þér miða!Voice stjarna heimsótti grunnskólabörnEldklár eftir brunaæfingu í Grindavík – Myndir!Fjáröflunartónleikar Hollvina Unu í Útskálakirkju í kvöldStórglæsilegir jólatónleikar í HljómahöllMikill metnaður í dagskrá Menningarviku GrindavíkurEllert Heiðar syngur í úrslitaþætti Voice ÍslandHalda áfram með Látum okkur streyma