sudurnes.net
Afhentu verðlaun fyrir best skreyttu húsin á Sólseturshátíðinni - Local Sudurnes
Verðlaunaafhending fyrir best skreyttu húsin á Sólseturshátíðinni, fór fram í síðustu viku en þá komu verðlaunahafar saman á bæjarskrifstofu, þar sem þeim var þökkuð þáttakan og verðlaun afhent. Umhverfisnefnd og Sólseturhátíðarnefnd höfðu ákveðið að velja eitt hús í hverju hverfi og fyrir valinu urðu: Rauða hverfi Lyngbraut 4 Hólmfríður Magnúsdóttir og Árni Guðnason Gula hverfi Sunnubraut 18 Helga Björk Heimisdóttir og Rúnar Friðriksson Græna hverfi Kjóaland 9 Sigrún Jónsdóttir og Hafsteinn Ársælsson Appelsínugula hverfi Eyjaholt 5 Bryndís Rögnvaldsdóttir og Unnar Guðmundsson Verðlaunagripirnir eru grjót úr Garðskagafjöru sem á eru steyptir glerbútar og glerperlur í litbrigðum hvers hverfis fyrir sig. Listaverkin má hafa bæði úti eða inni en þau gerði Ásta Óskarsdóttir, listamaður og fulltrúi í umhverfisnefnd Garðs. Meira frá SuðurnesjumÞrítug Þruma í Grindavík – Öflug starfsemi í veturKonur í aðalhlutverki á sýningum í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvennaGarðbúar duglegir að skreyta húsin á SólseturshátíðinniCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðHalda tónleika til styrktar Minningarsjóðs Ölla700 söngmenn þenja raddir um helginaBjóða veglegan afslátt í leiktæki á [...]