sudurnes.net
Samherji stefnir á 45 milljarða verkefni á Suðurnesjum - Local Sudurnes
Samherji fiskeldi áformar að byggja upp allt að 40.000 tonna landeldi á laxi í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi. Verkefnið verður unnið í þremur áföngum á næstu 11 árum. Landeldisstöðin verður staðsett við Reykjanesvirkjun og mun samanstanda af seiðastöð, áframeldisstöð og frumvinnsluhúsi ásamt þjónustubyggingum. Heildarfjárfesting er áætluð ríflega 45 milljarðar króna en stjórn Samherja hefur ákveðið að leggja til fjármagn til fyrsta áfanga verkefnisins. Ráðgert er að leita til fleiri fjárfesta þegar kemur að frekari stækkun landeldisins. Landeldisáformin í Auðlindagarðinum teljast stór í samanburði við önnur landeldisverkefni sem nú eru í undirbúningi á alþjóðavísu, segir í tilkynningu á vef fyrirtækisins. Fjölmörg störf verða til á framkvæmdatímanum og á annað hundrað störf við landeldið þegar vinnsla á afurðum hefst. Vinna við matsferli, leyfismál og hönnun er hafin en ráðgert er að ljúka því ferli á næsta ári. Samkvæmt áætlunum Samherja fiskeldis mun seiðaeldi við fyrsta áfanga hefjast í upphafi árs 2023 og áframeldi og vinnsla á afurðum á árunum 2024 og 2025. Í fyrsta áfanga verður framleiðslan 10.000 tonn af laxi og áætluð fjárfesting upp á 17 milljarða króna. Í öðrum áfanga verður bætt við 10.000 tonnum og í þriðja áfanga 20.000 tonnum. Ef allt gengur að óskum verður landeldið í [...]