Youtube stjarna veiðir Pokémon í Bláa lóninu
Þekktur tölvuleikjaspilari, Youtube-stjarnan Ali-A, er staddur hér á landi. Ali þessi er með yfir átta milljónir fylgjenda á Youtube-rásinni sinni og nærri tvær milljónir fylgenda á Twitter-reikningi sínum.
Ali-A hefur verið duglegur við að stunda Pokémon-veiðar hér á landi og hafa þær gengið vel samkvæmt þeim myndum sem hann hefur birt á Twitter. Í gær veiddi hann sjálfan Krabby, og það í miðju Bláa lónsins.
Look where I am! The Blue Lagoon in Iceland – This place is amazing! 😊🙌🏻 #LGOLEDTV pic.twitter.com/Rh3bwSjt5U
— Ali-A (@OMGitsAliA) July 20, 2016